*Berla*

14.10.2006 20:30:24 / erla

daddara..

Eflaust mörgum að óvörum þá ætla ég að blogga!
  • Margt búið að gerast undanfarið
  • Árshátíðarvikan geggjuð! Stanslaust stuð í kösu og ekki svo mikið að læra
  • SVo á fimmtudaginn árshátíðardagurinn.. Morgunpartý hjá Evu svo Kringluna með Berglindi, Mörtu og Kötu. Keypti mer m.a. skó fyrir kvöldið:D
  • Svo var það bara heim að gera sig til og svo klukkan 5 fór fólk í matinn sem ég að vísu sleppti því ég var upptekin
  • svo var fyrirpartý útá Nesi.  4YogYS..
  • og svo árshátíðin sjálf
  • ekki besta kvöld ævi minnar get ég sagt
  • síður en svo
  • Svo bara afslöppun í gær, læra með Berglindi seinni partinn og svo um kvöldið vorum við Berglind, Dabbi, Árni, Pési, Tommi, Elli, Hildur fyrri part og Katrín seinni part kvölds heima hjá Dabba að spila og hafa rólegt..
  • Við Berglind fórum að vísu fyrir það í mjög áhugaverðan ísbíltúr!

Í dag svo ekkert búið að gerast nema ég er búin að vera syngjandi í brúðkaupum og eitthvað..
Kvöldið enn óráðið.  Kannski í bíó með strákunum og Berglindi..en óvíst

Tommi kominn með bílpróf! Til hamingju, við erum stoltar af þér elskan:haha:

Erla

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 21:26:13 / Berglind

jáááá

Jáá, þykir leiðinlegt að blogga yfir þetta líka skemmtilega blogg hér fyrir neðan...

Glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir því að hún var eilítið á skallanum.. bara eilítið.. :p

Mjög svo leiðinleg vika í vændum..

Líffræðipróf, stærðfræðipróf, spænskupróf, sögupróf...
Jesús, og það er ekkert sem bannar þetta...:S

En svo verður MR-ví á næstu helgi.. gaman það ....

Árhátíðin í næstu viku... enn skemmtilegra það..
Þar verður trallað og tjúttað fram á rauða nótt :p

þetta blogg ætti að fá einhverskonar verðlaun fyrir að vera innihaldslausasta blogg sem skrifað hefur verið...Kannski ég fái bara fálkaorðuna (sem virðist vera veitt við hið minnsta tilefni)

Blessssss


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 01:27:52 / erla

nú vrða sagðr fréttir:D

Hún Bergiln mín elska bð mig vinsamlegst um að bæta blogleysi.
h´r kemru það
ójá
sko
ég var
í partý hjá
vinkonu minni
áðan niðrí bæ je
sko er þeta ekki flott
hjá mér að gera svona skálínu?
haha meðsöfunum
ognúa þríhryrnign
það er svo
gaman
hah!

en ég komina lltof snema heim, ekki sátt8|
hjálpi mér
einvher?

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 19:30:30 / Berglind

össssss

össss.....

Erlan ekki alveg að standa sig í þessu sé ég!

viljum byrja á að óska HALLDÍSI til hamingju með daginn!!! En hún er einmitt 17 ára í dag, fjarri góðu gamni á Spáni að dúlla sér! :D

Ok komið gott haha..

Ég e rað reyna að lesa sögu.. gengur ekkert glimrandi vel þar sem þetta er svooooo óáhugavert! Er farin að halda að ég hafi átt að velja áfangakerfi...

Mig langar svo að fara á Dilana og Á Móti Sól um helgina! En ég er víst of ung... pfft

Í kvöld eiga svo allir að slökkva ljósin kl 10 svo við getum horft á stjörnurnar.. slæmu fréttirnar eru þær að það er alskýjað.. samt spurning um að fara og horfa..

Hvað meira?!

Erla er núna í ökuskólanum.. Ökuskóli 2 var það leiðinlegasta sem ég hef gert hingað til .. jeeeesús..

4.Y var að keppa í Sólbjarti í dag.. töpuðum naumlega.. en einn gaurinn í 3-A liðinu var FRAMÚRSKARANDI frábær... vá maður.. gaurinn var snillingur.. klárlega á leið í Morfís liðið...

En jæja.. komið gott..

Erla.. skora á þig að gera eitthvað í bloggleysi hér á bær :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 16:35:24 / Berglind

Hörmulegur dagur - skólalega séð

Já, eins og Erlan sagði í gær var stærðfræðipróf í dag. Jesús minn, þetta var hörmung. Ég gat frkn 2 dæmi rétt. Klúðraði 55% dæmi allískyggilega.. og mig langar bara að fara að gráta þegar ég hugsa um þetta.. þannig að .. let´s not..

Svo var hlaupapróf í leikfimi.. Góðu fréttirnar eru þær að e´g var á betri "fyrri-hrings" tíma en seinast og ég var ekki eins þreytt og seinast. EN.. slæmu fréttirnar eru þær að eftir rúmlega einn hring fékk ég þvílíkan krampa í magann að ég var að íhuga að hringja á hjálp.. nema ég var ekki með síma á mér.. þannig að e´g hugsaði: "ok þetta hlýtur að lagast", labbaði og labbaði.. svo fór þetta að sjatla þegar ég var komin yfir brúna.. en nei. þá var ég náttla búin að sóa svo miklum tíma að ég hugsaði..  "glætan að ég láti þetta gilda" og labbaði mark.. greyið konan beið eftir mér heillengi HAHAHAHA.. úff sko..
En nú er bara málið að fara í World Class, æfa sig að hlaupa og massa þetta próf næst!
Samt svindl að þeir sem eru í vali sleppi við þetta helvíti! þá hefði ég valið valið! (auuhhjjj) .. REYNDAR gilda hin prófin meira.. EN.. það er OK...

Vá, skólatengd blogg.. hversu skemmtilegt!? Geeeggjað..

Ég ætla að fara að læra.. :(

Bleeee....


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 20:36:11 / erla

garg

Ég er að skrifa hér þar sem ég á að vera að læra undir stærðfræðipróf en það er bara svo hundleiðinlegt að ég nenni því ekki!

Eins og Hrefna sagði þá er hausttískan í 4.Y að vera veikur.  Gísli og Elli komu ekki í skólann, Hrefna kom í 1. tíma og ég kom í 2. og 3. tíma og báðar fórum við svo heim.  Hálfur afgangurinn af bekknum var svo hálfveikur í skólanum.  Reiknið nú kæru vinir hversu margir voru hressir?  Þuríður kemur inn í þessa reikninga og erum við því 24 í bekknum (ákvað að hafa hana með þar sem 24 er mun þægilegri tala en 23).  x=fjöldi veikra heima, y=fjöldi þeirra sem fóru veikir heim
Fjöldi hressra h= 1/2(24-x-y).  Fyrstur til að kommenta réttu svari er bestur?
Eins og sjá má er ég farin að hugsa í stærðfræði

En eins og fram kom fyrr þá fór ég veik heim og er því búin að liggja hér uppi í rúmi að reyna að ná einbeitingu við stærðfræðina en það er ekki það auðveldasta í heimi þegar maður þjáist af afar miklum höfuðverk og öðru tilheyrandi.  Við sjáum hvernig fer.

Aðeins eitt ánægjulegt á þessari stundu.  Það er þriðjudagskvöld sem þýðir að eftir tvo tíma er kominn miðvikudagur (þannig séð, ef ég sofna eftir 2 tíma vakna ég á miðvikudegi) og þá er helgi ekki á morgun heldur hinn.. Já svona á að hugsa jákvætt, það er þannig séð ekkert svoooo langt í helgina.  En samt.

Árni okkar fékk bílpróf í dag til hamingju með það elskan:D

Ég ætla að snúa mér aftur að helvíti.  (Stærðfræðinni)

Erla


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 00:17:03 / Berglind

Pókerkvöld!

    jæja elskurnar, ég held uppteknum hætti og ætla að skrifa blogg.. mér til ánægju og yndisauka... Og ykkur ef til vill líka

ÉG semsagt er stödd hérna í stofunni hans Ella.. ásamt þeim Steinari, Pésa, Árna,Bjarka og Ella að sjálfsögðu.. hörku pókerkeppni í gangi.. einn galli við það þó... Undirskrifuð kann ekki póker... sem flækir málið eilítið... En.. ég lifi. eg hef verið að dunda mér í pílukasti.

Ein pæling... Hvernig getur fólk keppt í heimsmeistaramóti í pílukasti,-? Þetta er bara heppni... ég meina. c´mon. Það er ekki hægt að upphugsa einhverja stragitíu... hate to brake it to ya....

Erla er núna einhversstaðar að gera eitthvað af sér. Eyrún frænka hennar er í bænum.. og þar sem þær tvær eru saman, sjaldnast lognmolla.. þannig að þær eru víst að gera allt vitlaust niðrí bæ....
Ég hreinlega nennti ekki með, enda alveg að mygla... í svona kósý stuði bara.. Þannig að ... hér er ég....

Alger misskilningur hjáfólki að við séum hættar með einstaklingssíðurnar okkar....
Berglind - berlind89.bloggar.is
Erla- erlaperla.bloggar.is
Tékkið á því endilega líka...

Fór með Verslingunum mínum í partý í gær.. Var driver...
Kvöldið í hnotskurn:
Ég lærði eins og mother fucker til að geta staðið við skyldu mína sem bílstjóri...
Var komin til Kötu um svona rúmlega 8... þá hófst gleðskapurinn... Keit, Krissa og ég.... góð blanda... Svo kíktu vinkonur Kötu einnig á okkur, þær Erna og Inga... Hressar gellur...
Svo var bara svissað um gír og sett í partý stuðið... Við keyrðum sem leið lá uppí Hafnarfjörð.. Partýin voru liggur við í sömu götu, en við hefðum getað vinkast á í gluggunum.. en c´mon við vorum stödd í versló-partýi þannig að maður þurfti að haga sér eins og... já ... verslingur...
Pínku vandræðanlegt.. en annars ekkert til að tala um sosum... Mér náttla tókst að toppa klaufaskapinn í sjálfri mér... Á leiðinni uppúr götunni úr Kristínar partý... þar sem keit partý var beint á móti... ætla ég að taka þessa fínu beygju... rekst í flautuna og ALLIR í partýinu líta við... laglegt Berglind..
Ekki nóg með það heldur er ég næstum búinað klessa á líka... top that

En hei.. árni er komin
bless


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 20:11:43 / Berglind

Erum við að tala um...

.... já, hvað erum við að tala um..?

Ég og Erlan ætlum í svaðilför á morgun.. Ég veit ekki hvort hún viti af því ennþá... EN, það er aukaatriði.. Við ætlum uppí Hafnafjörð í fyrirpartý fyrir Verzló-ballið... :D

Takk gæskan..

Tékkið á ógleymanlegt linknum.. BARA snilld


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 17:21:01 / erla

Erla. . . fer hamförum?

Já hér er ég að blogga í fyrsta skiptið. gaman að því

Ég er bara að reyna að sýna mig og sanna að ég get alveg verið dugleg líka svona stundum!

Mér er ennþá svo illt í munninum þetta háir mér ansi mikið! Til dæmis gat ég ekki almennilega fylgst með í efnafræðitíma í dag vegna sársauka. SVo er Sveinbjargarmyndatakan á morgun og ég býst ekki við því að mæta í hana þar sem ég vil frekar hafa gömlu ljótu myndina heldur en bólgið andlit hvað sem hver segir.  Það verður þá bara að hafa það, allir eru sætari en ég

Busaball Verzló á fimmtudaginn næsta...endalaus þrýstingur á mig að fara (mestmegnis frá Berglindi;)) en ég er ekki viss.. Sérstaklega eftir alla skandalana á Busaballi MR seinasta föstudag sem var annars alveg hin ágætasta skemmtun

Árni elskan var að ná bóklega bara núna áðan við óskum honum til hamingju!



Segjum þetta gott,
Erla


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 19:27:19 / Berglind

Bleeellli

Já, ladies and gentlemen, boys and girls...

Ég er svo södd að ég gæti sprungið! Quiznos og ís.. úfff!
En, ég á svoleiðis framtíðina fyrir mér í business geiranum að það er rosalegt.. Er hissa á að Jón Ásgeir sé ekki búinn að bjóða mér vinnu í einhverju var milljónafyrirtækinu sínu!
Eeeen... allavegana... ég semsagt var á Quiznos með forledrum mínum blessuðum.. og ég bara eitthvað: hei! Ég er í MR, er afsláttur þá?
Konan: þú þarft að hafa skólaskírteini
Ég: jáá, sko skólaskírteinin eru ekki komin ennþá. (en þar sem ég var í lopapeysu og með gleraugu sá hún að ég væri augljóslega í MR)
Konan: jæja, ég gef þér séns í þetta sinn
Ég : jibbí!

Já, skemmtileg saga Berglind, skemmtileg saga!

En allavegana.. þá var ég veik heima í dag.. og Jesús, María og öll þeirra fjölskylda.. Mikið leiðist mér að vera bara ein heima eins og skinkubiti og gera ekki neitt allan daginn! Það var nákvæmlega ekki neitt í sjónvarpinu, enginn á MSN, þannig að ég veite iginlega ekki hvað ég gerði... Jú, ég horfði á friends og One Tree Hill.. en comon... það eru takmörk fyrir því hvað maður getur gert það lengi í einu!!

Er verzló-ball málið !?! Það er góð spurning sem ég þyrfti að fara að leita svara við...
Sjáum tiiiil.. fer í rauninni svoltið mikið eftir fyrirpartýum og félagsskap.. því að Erlan verður eiginlega að koma líka.. annars verð ég eins og hundur í hænsnakofa (semsagt, á engan veginn heima þar)....

En jæja guys.. ég ætla að fara að læra... (eitthvað sem ég hefði kannski átt að gera í dag.... meðan mér leiddist... )

Bleeee

Þau eru OF svöl!


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 18:20:27 / Berglind

Opnunarblogg

Jæja þá...

Þetta verður mesta snilldarsíða sem uppi hefur verið..

stay tuned

kv. Berglind og Erla


» 5 hafa sagt sína skoðun